Velkomin í Hlöðuna!

Jólamarkaður

Við bjóðum ykkur velkomin á jólamarkaði Hlöðunnar 2025, á Álftanesi, 4 árið í röð. Jólatónlist, jólailmur, skauta á tjörninni (ef veður leyfir), hlýja sér með heitu kakó/kaffi og nýbökuðu bakkelsi, á meðan þið getið skoðað og verslað fallegt handverk, jólaskraut, kransa og vörur beint frá býli. Opið tvær helgar: 22-23 nóv. frá kl. 13-18 29-30 nóv. frá kl.13-18


Í lok Nóvember er haldinn jólamarkaður í Hlöðunni, þar sem finna má til dæmis Íslenskt handverk, kransa, jólaskreytingar, kjöt beint frá býli og alls kyns gómsætar jólakræsingar.

Í Hlöðunni er hægt að kaupa stóra trjádrumba sem við vinnum úr íslenskum trjám. Drumbarnir eru fáanlegir í nokkrum mismunandi stærðum og litum, en hægt er að nota drumbana sem stóla eða borð.